Hvar er bróðir þinn?

eBook: Hvar er bróðir þinn?

Sprache - Sonstige

Jetzt kostenlos lesen mit der readfy App!

Über das eBook

Brandur er munaðarlaus piltur og afar umkomulaus. Góðhjartaður prestur tekur hann að sér og ákveður að ala hann upp þó hann eigi ekki mikið til að gefa. En oft verður góður hestur úr göldum fola, þegar Brandur vex úr grasi fótar hann sig betur en margir. Hann flyst erlendis um skeið en gleymir aldrei hversu mikið hann á séra Gunnari að launa. Þegar Gunnar eldist á hann enga nána ættingja til að sjá um sig, en snýr Brandur þá aftur eða heldur hann ævintýrum sínum áfram í hinum stóra heimi? Hér fjallar Guðrún Lárusdóttir (1880 - 1938) aftur um málefnum sem stóðu henni nærri. Fátækt á Íslandi og náungakærleikur birtist hér eins og í mörgum verkum hennar og ævistarfi. idden /title /head body center h1 403 Forbidden /h1 /center /body /html


Über den Autor

Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin. Guðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi.

Produkt Details

Verlag: SAGA Egmont

Genre: Sprache - Sonstige

Sprache: ice

Umfang: 54 Seiten

Größe: 304,0 KB

ISBN: 9788728569214

Veröffentlichung: