Fyrstur til að deyja
Über das eBook
Líf Lindsay Boxer, yfirvarðstjóra á morðdeildinni í San Francisco, tekur óvænta stefnu einn mánudagsmorgunn þegar hún fær erfiðar fréttir frá lækninum. Áður en hún nær að meðtaka tíðindin að fullu er hún boðuð á Grand Hyatt hótelið þar sem ung hjón hafa verið myrt með hrottalegum hætti á brúðkaupsnóttina. Við tekur eitt vandasamasta mál ferilsins sem kemur Lindsay í kynni við fréttkonuna Cindy Thomas, yfirréttarlækninn Claire Washburn og yfirréttardómarann Jill Bernhardt sem sameina krafta sína í von um að leysa gátuna.
Über den Autor
James Patterson (1947) er bandarískur rithöfundur. Hann gaf út sína fyrstu skáldsögu árið 1976 og hefur skrifað hundruði bóka í kjölfarið. Þótt Patterson sé þekktastur fyrir spennu- og glæpasögur skrifar hann innan fjölbreyttra bókmenntagreina, bæði fyrir börn og fullorðna. Hann er mikilvæg rödd í bókmenningu í Bandaríkjunum og talar gjarnan fyrir mikilvægi lestrar- og skrifkunnáttu barna. Í gegnum árin hefur Patterson veitt skólum, bókasöfnum og sjálfstæðum bókabúðum rausnarlegan stuðning í þágu góðra málefna.
Produkt Details
Verlag: SAGA Egmont
Genre: Sprache - Sonstige
Sprache: ice
Umfang: 253 Seiten
Größe: 703,5 KB
ISBN: 9788728542064
Veröffentlichung: 10. März 2023