Hvíta slangan

ebook: Hvíta slangan

Sprache - Sonstige

Read this eBook for free with the readfy App!

About the eBook

Einu sinni var konungur sem þekktur var fyrir visku sína og speki. Á hverju kvöldi lét hann trúnaðarþjón sinn færa sér máltíð á lokuðum diski sem hann kaus að snæða í einrúmi. Þjónninn er forvitinn um þennan undarlega sið konungs og þegar hann kemst að hinu sanna um kvöldmáltíð konungs öðlast hann töframátt. Skyndilega skilur þjónninn öll dýrin í hallargarðinum. Þessi eiginleiki reynist mikill happafengur fyrir unga þjóninn sem lendir í útistöðum við konung og þarf að yfirgefa höllina. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.


About the Author

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Product Details

Publisher: SAGA Egmont

Genre: Sprache - Sonstige

Language: ice

Size: 8 Pages

Filesize: 246.4 KB

ISBN: 9788728036648

Published: