Þrír unglingar fremja siðlaus skemmdarverk
About the eBook
Málið fékk fljótlega heitið Möllevangsmálið í rannsókninni og í stórum fyrirsögnum fjölmiðla. Tilefnið var íkveikja í Möllevangsskólanum í Árósum 14. janúar 2003, kl. 00.38, sem leiddi til þess að heil álma brann til grunna en hún var 1200 fermetrar og metin á um 20 milljónir danskra króna. Auk íkveikjunnar í Möllevangsskólanum fjallaði málið um mörg önnur alvarleg afbrot, og náði einnig yfir brot sem áður hafði verið fjallað um með stórum fyrirsögnum í dagblöðunum. Meðal annars voru þetta alvarleg skemmdarverk sem höfðu verið framin fjórum sinnum á 400 grafreitum í tveimur kirkjugörðum í Árósum og Hornslet.Þá var fjallað um grimmdarleg dráp á fjórum kanínum við leikvöllinn Barnaland.Sömu piltarnir höfðu einnig kveikt tvisvar í Aðventukirkjunni, kveikt í Samsögötuskóla, í Elísu Smith-skólanum, í sveitabýli í Hornslet, auk þess að hafa kveikt þrisvar í bílum.-
About the Author
Í bókunum "Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
Product Details
Publisher: SAGA Egmont
Genre: Sprache - Sonstige
Language: ice
Size: 9 Pages
Filesize: 425.4 KB
ISBN: 9788726512212
Published: Sept. 28, 2020