Sólargeislinn og fanginn
About the eBook
Haustdag einn sitja í niðdimmu fangelsi á brimsorfinni sjávarströnd fangar, hinir vestu óbótamenn. Í klefanum sínum sitja þeir ófrýnir og vondir. En þá gerist nokkuð undur. Ofurlítill geisli af haustsólarsetrinu smýgur inn og fellur á andlit eins fangans. Í sama bili hefur lítill söngfugl upp raust sína og syngur svolítinn lagstúf. Þetta fallega tákn frá náttúrunni breytir ásjónu fangans, og hugsunum hans líka. Þó ekki sé nema örstutta hverfula sólarstund. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. -
About the Author
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. "Sólargeislinn og fanginn" er örstutt saga, varla nema örsaga eða ljóð. Þrátt fyrir það býr hún yfir mikilli myndauðgi, líkingum og litum sem smjúga í gegnum huga lesandans, eins og sólargeilsar gegnum rimlaglugga. Í fáum orðum tekst Andersen að fanga undurstórt efni, og milli línanna má lesa heila sögu, jafnvel fleiri en eina.
Product Details
Publisher: SAGA Egmont
Genre: Sprache - Sonstige
Language: ice
Size: 4 Pages
Filesize: 208.0 KB
ISBN: 9788726237665
Published: Nov. 9, 2020