Bandamanna saga

ebook: Bandamanna saga

Sprache - Sonstige

Read this eBook for free with the readfy App!

About the eBook

Bandamanna saga er eina Íslendingasagan sem öll gerist eftir söguöld eða skömmu eftir 1050. Hún gerist að mestu í Miðfirði í Húnaþingi og svo á alþingi á Þingvöllum. Verkið fjallar um feðgana Ófeig Skíðason og Odd son hans. Sá yngri varð auðugur af verslun og keypti sér jörð á Mel í Miðfirði ásamt því að kaupa sér þar goðorð. Lendir hann svo í hinum ýmsu vandræðum þar sem faðir hans kemur honum til bjargar. Bandamanna saga er sögð á gamansaman hátt en deilir um leið á stétt höfðingja.Frásögnin er merkileg fyrir þær sakir að hún er varðveitt í bæði Möðruvallabók og Konungsbók. Útgáfurnar tvær eru ekki eins að öllu leyti og er sú sem finnst í Möðruvallabók töluvert lengri en hin, sem dæmi. Skiptar eru skoðanir fræðimanna á því hvor útgáfan hafi komið á undan. -


About the Author

Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

Product Details

Publisher: SAGA Egmont

Genre: Sprache - Sonstige

Language: ice

Size: 30 Pages

Filesize: 258.0 KB

ISBN: 9788726225525

Published: